Vefsíða Borgarbókasafns

Myrkur og ljóðaslamm 2012


Ljóðaslamm2012Fimmta ljóðaslamm Borgarbókasafns var haldið á Safnanótt í Reykjavík föstudagskvöldið 10. febrúar 2012.

Þar kepptu tíu atriði til sigurs og var dagskráin afar fjölbreytt og metnaðarfull. Viðfangsefnið var „myrkur“ í takt við þema Vetrarhátíðar í ár og tókust ljóðskáldin á við það með mismunandi hætti. Sumir stigu á stokk með hefðbundna texta en aðrir lögðu meira upp úr sviðsmynd og heildaráhrifum og þótti hinni myrku sveit NYIÞ takast einkar vel upp að þessu leyti, enda vakti sláandi atriði þeirra, „Til eru hræ“ beinlínis hroll með áhorfendum. NYIÞ er skipað fjórum ungum mönnum sem koma nafnlausir og óþekkjanlegir fram í svörtum klæðum, og stóð hópurinn uppi sem sigurvegari kvöldsins. Textann fluttu þeir við undirleik sellós, keðju, trommu og harmónikku.

Í öðru sæti var Ísak Regal með rökkurljóðið „Leyndardómur í sígarettupakka“, æðandi rennsli í gegnum myrkari hliðar borgarinnar, þar sem hnignun og vonleysi renna saman við draumóra um ofurhetjudáðir. Í þriðja sæti voru loks þær Jófríður Ákadóttir og Áslaug Rún Magnúsdóttir með dulúðuga „Rökkurblíðu“ sem var rafmagnaðasta atriði slammsins þetta árið, þar sem brengluð rödd myrkursins reis upp úr ágengu suði. Þess má geta að þær stöllur eru meðlimir hljómsveitarinnar Samaris, sem sigraði Músíktilraunir á síðasta ári.

Siguratriðin þrjú eru gerólík en öll túlkuðu þau þemað á sannfærandi hátt. Mörg fleiri atriði voru sérlega athyglisverð og greinilegt að orðlistin lifir góðu lífi meðal ungs fólks.

Ljóðaslammið er árlegur viðburður og eru þátttakendur á aldrinum 15 – 25 ára.

Hér má sjá upptökur af siguratriðunum þremur.

Fyrst Til eru hræ, í flutningi NYIÞ:

Þá Leyndardóma í sígarettupakka í flutningi Ísaks Regal:

Og loks Rökkurblíðu þeirra Jófríðar og Áslaugar:

Hægt verður að nálgast upptökur af öllum tíu atriðunum á vef Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO innan skamms.

Í dómnefnd voru leikkonurnar Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir og María Þórðardóttir, Stefán Máni rithöfundur, tónlistarmaðurinn Óttarr Proppé og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur.

Kynnir kvöldsins var Kári Viðarsson.

NYIÞ

Jófríður Ákadóttir og Áslaug Rún Magnúsdóttir

Ísak Regal

Baldvin Þormóðsson: Snertiskjár

Bryndís Ýrr Ingvarsdóttir: Rós myrkrahöfðingjans

Jóhannes Bjarki BjarkasonKristján KlausenMaría Rist Jónsdóttir: Maðurinn er myrkriðNef eru nytsamleg: Hafið þið einhvern tíma þurft að passa ykkur?Nikulás Stefán Nikulásson: Homo spiritual

Ljóðaslamm 2012 var í samvinnu við Samband íslenskra framhaldsskólanema og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO.

Merki Sambands íslenskra framhaldsskólanema Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�