Vefsíða Borgarbókasafns

Myndasögusamkeppni


Frá því árið 2009 hafa Borgarbókasafn og Myndlistaskólinn í Reykjavík staðið fyrir myndasögusamkeppni og -sýningu fyrir fólk á aldrinum 10-20+ ára. Samkeppnin fer fram í apríl og er sýning á verkunum sett upp í maí.

Hingað til hafa þemu samkeppninnar tengst stórafmælum þekktra myndasögupersónu, árið 2009 varð Tinni t.d. áttræður og var keppnin því tileinkuð honum. Árið 2010 voru liðin sextíu ár frá því að myndasaga Charles Schulz, Smáfólk (Peanuts), birtist fyrst og í tilefni þess var þema keppninnar tileinkað dagblaðamyndasögum undir yfirskriftinni „Skrípó: lítil saga í fáeinum römmum“. Yfirskrift ársins 2011 var „Ofurhetjan“ en hún fagnaði sjötugsafmæli á því ári og 2012 verður ASTRO BOY sextugur og af því tilefni er þema keppninnar "MANGA".

Vinnuaðferðin er frjáls og verkin geta hvort sem er verið myndasaga eða stök mynd með myndasögutema og/eða sem tengist myndasögum á einhvern hátt.

Miðað er við að hámarkslengd efnis sé 2 A4 blöð eða ein síða í A3 (öðrum megin) og eru þátttakendur beðnir að nota frekar þykkan pappír en ekki venjuleg fjölritunarblöð til að tryggja að verkin verði fyrir sem minnstu hnjaski í upphengingu.

Myndasögukeppni 2009 Myndasögukeppni 2010 Myndasögukeppni 2011 Myndasögukeppni 2012


Til baka



Senda Senda  Prenta Prenta  Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�