Vefsíða Borgarbókasafns

Myndasögusamkeppni 2011


Borgarbókasafn og Myndlistaskólinn í Reykjavík standa nú í þriðja sinn fyrir myndasögusamkeppni og - sýningu fyrir fólk á aldrinum 10-20+ ára.

Sem fyrr er keppnin helguð tiltekinni myndasöguhetju en árið 2011 verður kvenhetjan Wonder Woman sjötug (birtist fyrst árið 1941). Þema keppninnar er því „Ofurhetjan“.

Dómnefnd skipa Bjarni Hinriksson myndasöguhöfundur, Björn Unnar Valsson, bókmenntafræðingur og Inga María Brynjarsdóttir grafískur hönnuður og myndhöfundur.

Miðað er við að hámarkslengd efnis sé 2 A4 blöð eða ein síða í A3 (öðru megin) og eru þátttakendur beðnir að nota frekar þykkan pappír en ekki venjuleg fjölritunarblöð til að tryggja að verkin verði fyrir sem minnstu hnjaski í upphengingu.

Vinnuaðferðin er algerlega frjáls og verkin geta hvort sem er verið myndasaga eða stök mynd með myndasögutema og / eða sem tengist myndasögum á einhvern hátt.

Þátttakendur eru beðnir að skila verkunum á Borgarbókasafnið, aðalsafn, Tryggvagötu 15, í umbúðum merktum: „Ofurhetjan 2011“. Vinsamlega athugið að láta fylgja fullt nafn, fæðingarár, símanúmer og tölvupóstfang.

Skilafrestur efnis í samkeppnina er til og með 15. apríl.

Upplýsingar veita Úlfhildur Dagsdóttir (ulfhildur.dagsdottir@reykjavik.is), Björn Unnar Valsson (bjorn.unnar.valsson@reykjavik.is) og Þorbjörg Karlsdóttir (thorbjorg.karlsdottir@reykjavik.is), eða í síma: 4116100.

Auglýsing til útprentunar (pdf 0.84mb)

Myndasögusamkeppni 2011


Til baka



Senda Senda  Prenta Prenta  Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�