Vefsíða Borgarbókasafns


Klambrar


Blómin
Liljur eru hvít blóm
Blá blóm og bláber
í skóginum
Ljón í skóginum.
Ég þekki fífil
hann er gulur
Dýrablóm og dýragras.
Þegar sumarið kemur
Þurfa að vera blóm
sem vaxa...
Appelsínugul og fjólublá.
Hvít og bleik.
Græn og gul
Og allskonar lit.

Nóaborg

Í gær...
Ég dansaði í gær
Ég var í leikskólanum í gær
Ég ég var með pabba
Ég var í fríi
Ég fór í sund með pabba.
Ég var í hópastarfi í gær
Ég var að horfa heima
Ég var að leika
heima hjá mömmu
Ég var hjá pabba
að leika mér.

Sólborg

Stjörnur
Stjörnur blika í nóttinni
Stjörnur springa
Stjörnur skína
Stjörnur glansa á himni
Himininn er blár
Grænt laufblað
dettur á jörðina
Stjörnunar skína á mig


Hamraborg

Ljósið
Ljósið er inni
Ljósið skín frá sólinni
Ég vil búa til vasa ljós
Ég vil búa til lampa
Ég vil búa til stjörnur
Stjörnurnar skína á himni
Tunglið skín
Sól á himni.

Sunnuborg

Blóm
Blóm, blóm, blóm
Sum eru bleik og sum eru blá
Falleg blóm, rosa falleg blóm
Sum eru svört og sum eru hvít
Sum eru rauð og sum eru blá
Þau vaxa á grasinu
Stundum týnir maður blóm
Stundum setur maður blóm í blómapott
Stundum þarf að vökva þau.
Blóm, blóm, blóm.


 
Holtaborg

Förum á fætur
Allir að fara á fætur
Klukkan er hálf þrettán.
Stjörnur á himnum.
Förum í ísbúðina
Kaupum þrefaldan Súkkulaðiís.
Borðum appelsínu og epli
Súkkulaði og jarðaber
Og meiri ís
Og meira súkkulaði
Og fisk


Grænaborg 

Dýrin og stjörnurnar!!!
Litla kisa,
komdu til mín
Malaðu fallega
Villisvín
í lofti flýgur
Fallegt ertu
Fallegt og best.

Krunk, krunk segir Krummi.
Arg, arg segir annar krummi
Stjörnur á himni
Ljósatæki í lofti
Tíst, tíst segir músin.
Kí, kí segir páfagaukurinn.
Stjörnur falla af himni.


 
Regnbogaland/Foldaskóla

Himininn
Himininn er blár
Himininn er grænn
Ský á himni
Fuglar fljúga um himinn
Og sólin skín
Regnbogi á himni
Rigning úr himni
Stjörnur glampa
Og tunglið skín
Norðurljós, halastjörnur
óskastjörnur.
Friðarsúla lýsir upp
himininn
Stundum er himininn
appelsínugulur.
Og flugvélar og þyrlur fljúga
Lítil börn úti að leika
Snjór kemur úr himni.
Bílar keyra
Ungar fljúga
Ský fyrir sólu
Sólin skín.


Hlíðaborg

Dýraljóð
Hesturinn hleypur
Hann er brúnn
Ég á ekkert dýr
En ég á eina kisu.
Hún hleypur alltaf í burtu
En hún klórar aldrei.
Kýr og hestar.
Hesturinn hneggjar
Og borðar gras.
Gobbidí, gobbedí, gobb
Heyrist í hestinum
Hesturinn minn er hvítur
Hvítur hestur....


Múlaborg

Himininn
Himininn er blár
Stjörnunar eru gular
Ský á himni
Sólin er gul 
Tunglið er gult
Tunglið er grátt á daginn
eða hvítt.
Flugvélar fljúga um himininn
Þyrlur fljúga um himininn
Þotur þjóta um himininn
Dropar detta úr himninum
Dropar detta úr skýjunum
Snjór kemur úr himninum!


Arnarborg

Sólarljóð
Sólin er gul
Stundum appelsínugul
Hún er með gula
og appelsínugula geisla
Sólin vaknar
Sólin skín
Þá líður manni vel
og verður heitt
Sólin er heit
Sólin fer stundum
bakvið ský
Og verður bleik.
Á kvöldin fer sólin
að sofa.

Ösp

Himininn
Stjörnurnar eru gular
Stjörnurnar eru á himninum
Stjörnur skína um nætur
Og tunglið.
En svo kemur sólin
Flugvélar fljúga um himininn
Og þyrlur.
Rigningin kemur úr himninum
Og snjórinn
Sólin skín á himni
Hún er gul
Himininn er blár
Stundum ljósblár
Snjórinn er hvítur
Og rigningin blá.

Fálkaborg

Vetrarsól
Sólin skín
Það er kominn snjór
Það snjóar
Sólin er gul
Okkur líður vel í sól
Því hún er svo hlý
Snjórinn er hvítur
Sólin bræðir snjóinn
Þá koma pollar

Það er kominn vetur
Tréið er brúnt og grænt
Það er jólatré!
Svo kemur jólasveinn
Hann kemur með epli
Eplið er rautt
Eplið er grænt
eplið er gult.

Hálsakot


Krakkaljóð!
Krakkar eru börn.
Þeir leika sér og lita
og róla sér og kubba
og renna sér og hlaupa.
Krakkar vega salt
og moka með skóflum
Krakkar lesa í bók.

Sum börn eru strákar
en sum eru stelpur.
Sum börn eru stór
en önnur lítil.
Við erum stór!


Jöklaborg

Sjórinn
Sjórinn er blár
Það eru fiskar í sjónum
Fiskurinn er grár
Það eru krossfiskar í sjónum
Og kolkrabbar.
Bátar sigla á sjónum
En kafbátar oní sjónum.
Hákarlar og hvalir, 
Og háhyrningar synda í sjónum
Steinar og sandur í sjónum
svartir og gulir steinar
Þörungar og grænt slím
Sjórinn er blautur
Ég syndi í sjónum!

Hálsaborg

Undir stjörnunum
Stjörnurnar eru á himninum
Þær eru gular
Dýrin eru í Húsdýragarðinum!
Við spörkum í fótbolta
Stjörnurnar eru á himninum
Himininn er blár
á næturnar er hann svartur!
Dýrin í Afríku
Górillur í Afríku
Stjörnurnar eru gular
Mamma Mö er kýr
Tígrisdýrið er appelsínugult
Ljónið er gult
og borðar gras
Nei borðar dýr!

Holt

Stjörnur
Stjörnur eru hvítar
Sumar gular
Stjörnurnar eru á himnum
Stjörnurnar skína á nóttinni
Þær skína á grasið
Stjörnurnar eru óskastjörnur
Hvítar í útlöndum
Gular á Íslandi
Himininn er blár
og svartur á nóttunni.
Skýin eru hvít
Stundum grá
Þá kemur rigning.

Sólhlíð

Á ströndinni
Á ströndinni leik ég mér
með fötu og skóflu.
Og hákarlar ljóma í sjónum.
Prinsessan situr og prjónar.
Og sandurinn berst inn í hús.
Það eru skeljar á ströndinni
Og selur að synda í sjónum.
Sjórinn er blár.
Ljónið segir aaarg...
Það eru Krókódílar á ströndinni.
Hestur að lesa bók.
Og skip á sjónum.


Til baka



Senda Senda  Prenta Prenta  Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�