Kvikmyndir
Heimur kvikmyndanna
Bókin inniheldur hartnær 90 ritgerðir eftir 70 höfunda um kvikmyndasögu og kvikmyndalist, prýddar um 1.200 ljósmyndum.
Fyrst er fjallað um kvikmyndir ólíkra þjóðlanda og rakin saga kvikmyndarinnar á 20. öld. Þá er rætt um ýmsar kvikmyndagreinar og í þriðja hluta er fjallað um sambandið milli kvikmynda og samfélags. Þá er rætt um tengsl stjórnmála og kvikmynda, kynjafræði tengd kvikmyndum og stjörnur og leiklistarfræði skoðuð nánar. Loks er fjallað um íslenskar kvikmyndir í alþjóðlegu samhengi.df
Er bókin inni? Athugaðu á leitir.is
Bíósaga Bandaríkjanna
Könnunarleiðangur inn í töfraveröld kvikmyndalistarinnar og skoðunarferð um Draumaverksmiðjuna í Hollywood. Verkið er samið af innsæi og þekkingu af höfundi sem hefur yndi af viðfangsefni sínu og smitar lesandann með áhuga sínum og frásagnargáfu.
Er bókin inni? Athugaðu á leitir.is
Kúreki norðursins : kvikmyndaskáldið Friðrik Þór Friðriksson
Friðrik Þór Friðriksson er einn merkasti kvikmyndagerðarmaður Íslendinga og einn fárra íslenskra listamanna sem hlotið hefur alþjóðalega viðurkenningu. Þrátt fyrir þetta hefur lítið sem ekkert birst um list hans á prenti. Í bók þessari er leitast við að gefa sem fjölbreytilegasta mynd af þessum frægasta kvikmyndaleikstjóra Íslendinga.
Er bókin inni? Athugaðu á leitir.is
Ég tvista til þess að gleyma – fleyg orð úr íslenskum kvikmyndum
Í bókinni Ég tvista til þess að gleyma – fleyg orð úr íslenskum kvikmyndum er farið yfir íslensku kvikmyndasöguna á óformlegan hátt. Í henni eru fyndnar setningar og frasar sem allir íslendingar ættu að kannast við og fleiri til: Hann veit ekki hvar Sódóma er, Hver á þennan bústað, já eða nei?, Ef ég sé með hattinn fer ég örugglega í stuð, og Icelandic is not that hard to learn, you know like sojasósa, salt, pipar og servíetta. Allir eiga sína uppáhaldsfrasa! Er þinn í bókinni?
Er bókin inni? Athugaðu á leitir.is
The complete Lynch
Bókin er byggð á viðtali við Lynch og farið er yfir feril hans og myndir, sem margar eru með költ-status, m.a. Eraserhead, Blue velvet og sjónvarpsþættirnir Twin peaks.
Er bókin inni? Athugaðu á leitir.is
Til baka