Ævisögur
Indjáninn - skálduð ævisaga
Skálduð ævisaga Jóns Gnarr.
„Fæðing mín er annað reiðarslag fyrir fjölskylduna. Að vísu er ég ekki þroskaheftur. Það er léttir. En eftir fæðinguna blasir önnur hryllileg staðreynd við: Ég er rauðhærður. Það hefði ekki getað verið meira áfall þótt ég hefði verið svartur.“
Er bókin inni? Athugaðu á leitir.is
Líf - Keith Richards
Sjálfsævisaga Keiths Richards, gítarleikara og aðallagahöfundar frægustu rokkhljómsveitar heims, The Rolling Stones. Mögnuð bók, skrifuð af aðdáanverðri hreinskilni. „Algjör sprengja … Dáleiðandi.“ – Sunday Telegraph.
Er bókin inni? Athugaðu á leitir.is
Kurt Cobain : ævisaga
Kurt Cobain og Nirvana eru goðsögn. Cross byggir þessa ævisögu Cobain á meira en 400 viðtölum, dagbókum Cobains og fjölda annarra heimilda. KURT COBAIN, ævisaga, er sögð „ … hin endanlega ævisaga Kurt Cobain.“ Entertainment Weekly skrifaði um bókina: „Stórkostleg ævisaga.“
Er bókin inni? Athugaðu á leitir.is
Jóhannes Sveinsson Kjarval - ævisaga
Jóhannes Kjarval er einn þekktasti listmálari Íslands. Í þessari bók færðu að kynnast lífi hans og list.
Er bókin inni? Athugaðu á leitir.is
Justin Bieber eins og hann er
Í þessari bók færðu að kynnast unga stráknum sem varð heimsfræg poppstjarna á einni nóttu. Hvaðan kemur Justin og hvert stefnir hann? Bókin inniheldur alls kyns skemmtilegar frásagnir af stjörnunni, myndir, leiki og gátur.
Er bókin inni? Athugaðu á leitir.is
Til baka