Naglinn | Sýningaröð

Dans á rósum eftir Louise St. Djermoun

Naglinn er heiti á sýningaröð á Borgarbókasafninu Sólheimum. Hver sýning samanstendur af einu listaverki sem valið er úr Artóteki Borgarbókasafnsins og stendur sýningin í tvo mánuði. Áhugasamir geta keypt verkið eða leigt það á kaupleigu en þá eignast viðkomandi verkið þegar það hefur verið greitt upp. Sé sýningarverkið keypt (eða leigt) má kaupandinn velja næsta verk úr Artótekinu til að hengja á Naglann. 

Í Artótekinu er til leigu og sölu myndlist eftir listamenn, sem allir eru félagsmenn í Sambandi Íslenskra Myndlistamanna. Markmiðið með Artótekinu er að kynna samtímalist og gefa fólki kost á að leigja eða eignast listaverk á einfaldan hátt.

Fylgdu Artótekinu á Facebook...


Nánari upplýsingar veitir:
Lísbet Perla Gestsdóttir, bókavörður
lisbet.perla.gestsdottir@reykjavik.is