Bókabíllinn Höfðingi

Borgarbókasafnið rekur bókabílinn Höfðingja og er aðsetur hans við Kringluna.
Höfðingi er á ferðinni alla virka daga frá 15. ágúst til 30. júní og hefur viðkomu á þrjátíu stöðum víðsvegar um borgina.
Hægt er að panta bókabílinn í heimsókn á miðvikudögum, til dæmis í leikskóla eða aðrar stofnanir.
Bíllinn er myndskreyttur af Gunnari Karlssyni myndlistarmanni.
Sími í bókabíl: 699 0316
Hér má kynna sér sögu Höfðingja.