Borðspil

Borgarbókasafnið býr yfir sístækkandi borðspilasafni til útláns en spilin eru að finna á öllum söfnum. Boðið er upp á fjölbreytt úrval borðspila fyrir alla aldurshópa, börn, ungmenni og fullorðna.

Borgarbókasafnið vill með því efla framboð á ókeypis afþreyingu fyrir alla. Öll borðspil eru lánuð í 14 daga. Hægt er að taka frá hér á síðunni og láta senda á það safn sem hentar. Viltu halda spilakvöld eða spilatengdan viðburð? Komdu og fáðu lánuð skemmtileg spil sem henta þínum hóp eða spilaðu á staðnum. Borgarbókasafnið vill gjarnan hýsa hverskonar spilaviðburði svo ekki hika við að hafa samband.

Smellið hér til að skoða úrvalið 


Vantar þig innblástur? 

Borðspil fyrir börn

Spil fyrir fjölskyldur 
(8 ára og eldri)

Spil í ferðalagið

Spil á pólsku

Spil fyrir fullorðna