Leiðbeiningar fyrir Rafbókasafnið

Hægt er að njóta þess sem Rafbókasafnið hefur upp á að bjóða eftir ýmsum leiðum en fyrsta skrefið er einfaldlega að skrá sig með bókasafnskírteininu. Rafbókasafnið byggir á OverDrive rafbókaveitunni sem hægt er að fá aðgang að gegnum vafra, öpp eða forrit.

Hér má finna PDF-skjal með leiðbeiningum fyrir skráningu á Rafbókasafnið og notkun þess.

Hér fyrir neðan er farið yfir helstu atriði varðandi skráningu og notkun, og vísað á helstu forrit sem hægt er að nota.

Skráning

Nauðsynlegt er að hafa gilt bókasafnskort og lykilorð hjá Borgarbókasafni eða öðru aðildarsafni.

Ef þú átt ekki bókasafnskort í gildi getur þú keypt kort eða endurnýjað hér á vefnum. Smelltu á „Mínar síður“, skráðu þig inn með kennitölu og lykilorði eða rafrænum skilríkjum í gegnum island.is, og þér verður vísað áfram á greiðslusíðu.

Í fyrsta skipti sem notandi skráir sig inn á Rafbókasafnið þarf hann að stimpla inn strikamerkisnúmerið á bókasafnskortinu sínu og lykilorð. Númerið er oftast framan á kortinu og byrjar á GE, A, B, IL eða 400.

Ef númerið er ekki skráð á bókasafnsskírteinið má finna það hér á vefnum með því að skrá sig inn á „Mínar síður“ og fara í „Mínar stillingar“. Þar má sömuleiðis sækja um nýtt lykilorð. Þá má líka hafa beint samband við bókasafnið til að fá aðstoð.

Einnig er hægt að skrá sig með Facebook eða sérstökum OverDrive-aðgangi en til þess að fá lánað þarf að gefa upp númerið á bókasafnskortinu og lykilorð í fyrsta skipti sem það er gert.

Libby appið í síma og snjalltæki

Á Facebook-síðu Rafbókasafnsins má finna ítarlegar skref-fyrir-skref leiðbeiningar fyrir Libby appið! Hægt er að lesa rafbækur og hlusta á hljóðbækur í Libby appinu sem til er fyrir iOS, Android og Windows 10 síma og önnur snjalltæki og má nálgast það í Play Store (Android), App Store (iOS) og hjá Microsoft (Windows 10).

Athugið að Overdrive appið, sem var forveri Libby appsins, var aflagt með öllu í lok apríl 2023.

Lesbretti

Hægt er að lesa bækur Rafbókasafnsins á velflestum tegundum lesbretta, öðrum en Kindle og Storytel. Ekki er hægt að lesa bækur Rafbókasafnsins í Storytel eða Kindle lesbrettum að Kindle Fire undanskildu.

Til þess að lesa bók frá Rafbókasafninu á lesbretti þarf fyrst að stofna Adobe ID-aðgang og sækja og setja upp Adobe Digital Editions forritið á tölvu. Bókinni er svo hlaðið niður á tölvuna, hún opnuð í Adobe Digital Editions og færð þaðan yfir á lesbrettið.