Viðurkenning Hagþenkis | Tíu framúrskarandi rit tilnefnd

 Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2021 voru kynntar í dag 9. febrúar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Árið 2006 var tekin upp sú nýbreytni að tilnefna tíu höfunda og bækur er til greina kæmu.

Hér gefur að líta tíu framúrskarandi rit sem eru tilnefnd í ár og umsögn dómnefndar: 

Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir. Samfélagshjúkrun. Iðnú útgáfa.
Þarft kennslurit um samfélagslega brýn málefni sem hefur víða skírskotun og nýtist bæði skólafólki og almenningi.

Aðalheiður Guðmundsdóttir. Arfur aldanna. I Handan hindarfjalls. II Norðvegur. Háskólaútgáfan.
Vandað og yfirgripsmikið rit sem opnar heillandi baksvið fornaldarsagna fyrir lesendum.

Anna Dröfn Ágústsdóttir og Guðni Valberg. Laugavegur. Angústúra.
Með göngu upp Laugaveginn fá lesendur nýja sýn á sögu og þróun húsanna við þessa aðalgötu bæjarins, verslun og mannlíf.

Arnþór Gunnarsson. Hæstiréttur í hundrað ár. Saga. Hið íslenska bókmenntafélag.
Verðugt afmælisrit sem grefur upp forvitnilegar og oft óvæntar hliðar á sögu æðsta dómstóls sjálfstæðs Íslands.

Auður Aðalsteinsdóttir. Þvílíkar ófreskjur. Vald og virkni ritdóma á íslensku bókmenntasviði. Sæmundur.
Brautryðjandaverk þar sem fjallað er um þróun bókmenntaumfjöllunar á Íslandi með hliðsjón af alþjóðlegum straumum.

Guðrún Ása Grímsdóttir (útgefandi). Sturlunga saga eða Íslendinga sagan mikla I-III. Hið íslenzka fornritafélag.
Úrvals textaútgáfa með greinargóðum inngangi um rannsóknir á Sturlungu og umgjörð hennar. Lesendur fá góða innsýn í ófriðartíma 13. aldar.

Kristjana Kristinsdóttir. Lénið Ísland. Valdsmenn á Bessastöðum og skjalasafn þeirra á 16. og 17. öld. Þjóðskjalasafn Íslands.
Vandað og ítarlegt verk um stöðu Íslands sem léns í danska konungsríkinu, byggt á umfangsmikilli rannsókn á frumheimildum.

Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir. Reykjavík barnanna. Tímaflakk um höfuðborgina okkar. Iðunn.
Fjörleg og falleg bók fyrir alla aldurshópa um líf og starf í Reykjavík fyrr og nú.

Már Jónsson (ritstjóri). Galdur og guðlast á 17. öld. Dómar og bréf I-II. Sögufélag.
Rit sem opnar greiða leið að frumheimildum um galdramál og veitir jafnframt góða yfirsýn yfir framandlegt tímabil sögunnar.

Þórður Kristinsson og Björk Þorgeirsdóttir. Kynjafræði fyrir byrjendur. Mál og menning.
Vel unnið og vekjandi kennsluefni sem gerir nýrri námsgrein góð skil og tengir saman sögulegar forsendur og samtímaumræðu.

Borgarbókasafnið óskar tilnefndum höfundum til hamingju með viðurkenninguna og býður lánþegum að sjálfsögðu upp á tilnefndar fræðibækur til láns og lestrar.

Verðlaunarit Viðurkenningar Hagþenkis verður tilkynnt við hátíðlega athöfn um miðjan mars. 

Mynd mbl.is / Unnur Karen

Category
UpdatedFriday February 11th 2022, 20:56
Materials