Information about the event

Time
10:00
Price
Free
Target
Children
Literature
Children

FULLT! Sumarsmiðja | Saga sem lifnar við fyrir 9-12 ára

Monday August 15th 2022 - Friday August 19th 2022

Skráning er hafin á sumar.vala.is.
Finnið bókasafnið með því að velja „starfsstað“.

Hvernig skapar þú ógleymanlegar söguhetjur og undraheima? Linda Ólafsdóttir myndhöfundur og barnabókahöfundur leiðbeinir börnum og ungmennum um hvernig þau færa líf í sögurnar sínar. Þátttakendur læra að teikna sögupersónur og skapa umhverfi þeirra og raða saman í bók sem þau útbúa annað hvort eftir sinni eigin sögu eða klassískum ævintýrum.

Linda Ólafsdóttir hefur myndlýst fjölda bóka fyrir börn og fjölskyldur. Hún er með BFA gráðu í myndlist, MFA gráðu í myndlýsingum (e. illustration), kennsluréttindi og kennir við Myndlistaskólann í Reykjavík ásamt því að teikna og skrifa frá vinnustofu sinni í Laugardalnum. Linda er höfundur bókarinnar Leika? og er meðal annarra bóka myndhöfundur að Reykjavík barnanna, Íslandsbók barnanna, Draumaþjófsins og Blíðfinns.

Nánari upplýsingar veitir; 
Sigrún Jóna Kristjánsdóttir sérfræðingur | 411-6160
sigrun.jona.kristjansdottir@reykjavik.is