Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur

Information about the event

Time
16:30 - 17:30
Price
Free
Target
Adults
Learning
Cafés

Fróðleikskaffi | Fjölæringar

Monday April 22nd 2024

Hvað er fegurra en blómabreiða í vel hirtum garði, þar sem litskrúðugur plöntur af ýmsum stærðum og gerðum gleðja augað?

Fjölæringarnir eru  plöntur sem lifa lengur en eitt ár utanhúss, þ.e.a.s. jurt-kenndar plöntur sem fella blöð og stöngla yfir veturinn og vaxa svo upp að vori. Tré falla því ekki undir hugtakið.

Á fróðleikskaffinu mun Guðríður Helgadóttir segja frá ævintýralegum heimi fjölæringanna. Hvaða tegundir þola vel íslenskar aðstæður, hvernig vaxtarstaður hentar, gróðursetning þeirra, jarðvegur, áburður, umhirða og annað sem tengist þessum fallegum plöntum.  

Guðríður Helgadóttir er garðyrkjufræðingur og líffræðingur. Hún hefur unnið við garðyrkjutengd störf allan sinn starfsferil og frætt almenning um garðyrkju með ýmsum hætti, m. a. í útvarpi og sjónvarpi. Árið 2023 gaf Guðríður út bókina Fjölærar plöntur.  

Facebook viðburður

 

Nánari upplýsingar veitir:

Jónína Óskarsdóttir, sérfræðingur
jonina.oskarsdottir@reykjavik.is | 411 6250

Materials