Heklaðar dúllur

Information about the event

Time
15:30 - 17:30
Price
Free
Target
Everyone
Learning
Arts & Crafts

Tilbúningur | Dúlluhekl

Thursday April 11th 2024

Langar þig að læra að hekla dúllur / ferninga?  

Heklaðir ferningar eru einföld og tímalaus hönnun og fela í sér möguleika  á fjölbreytni litum og munstri. Að hekla dúllur er frábær leið til að nýta garnafganga. Margir litlir dúllur / ferningar geta orðið að stórum teppum, púðum eða ýmsu öðru.

Arnþrúður Ösp Karlsdóttir kennir helstu grunnmunstur og tækni við dúlluheklið.

Eitthvað af garni og heklunálum verður á staðnum en betra er þó að þátttakendur hafi með sér heklunál af stærðinni 3-4 og garnhnotu.

Verið velkomin.

Tilbúningur fer fram í Borgarbókasafninu í Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar og í Borgarbókasafninu Spöng  fyrsta miðvikudag hvers mánaðar klukkan 16:00.

Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.

Facebook viðburður 

 

Nánari upplýsingar veitir:

Sæunn Þorsteinsdóttir
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250

Materials