Pottaplöntur
Skipti á plöntum og græðlingum

Information about the event

Time
13:00 - 15:00
Price
Free
Target
Adults
Markets
Talks & discussions

Plöntuskipti | Blóm og græðlingar

Sunday May 5th 2024

Allir blómaunnendur eru velkomnir á bókasafnið með plöntur og græðlinga til að skiptast á við aðra ræktendur.

Inni á safninu verður pláss fyrir inniblómin og á svölunum er hægt að vera með garðplöntur. Sömuleiðis má koma með potta og annað sem tilheyrir ræktuninni og skipta.

Plöntuáhugafólk er er hvatt til að koma og gera góð skipti. Þau sem ekkert hafa til skiptanna eru líka velkomin því það er aldrei að vita nema hægt verði að fá plöntu eða afleggjara án þess að gefa á móti. Einnig er þetta upplagt tækifæri fyrir þau sem eiga umfram, að deila með öðrum – og ekki síður að spjalla við aðra ræktendur um umhirðu plantanna og þetta skemmtilega áhugamál.

Viðburðurinn á facebook


Nánari upplýsingar veitir:
Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is  | 411 6250 / 892 0326
 

 

Materials