Information about the event

Time
17:00 - 18:00
Price
Free
Talks & discussions

Stofan | Opnun - Furðuverk eða fyrirmyndir?

Tuesday May 14th 2024

Manst þú eftir kvikmynd, sjónvarpsþætti eða vinsælu lagi þar sem fatlaður einstaklingur kemur fyrir? Hvernig birtist sagan þér - leist þú á karakter sem fyrirmynd eða var verið að segja sögu furðuverks?

Við óskum eftir ykkar hjálp við að finna dæmi úr dægurmenningu þar sem fötlun kemur fyrir með einum eða öðrum hætti, lýsingu á birtingamyndinni og hvernig þú upplifðir það.

ÖBÍ réttindasamtök opna söfnun á dæmum frá almenningi á Borgarbókasafninu Grófinni. Þau hafa sett upp rými sem er opið  frá milli 14.-22. maí þar sem söfnun stendur yfir. Einnig er hægt að senda inn dæmi rafrænt á eftirfarandi vefsíðu: Þitt innlegg

Miðvikudaginn 22. maí 2024 lýkur söfnuninni með upplestri.  Öllum er frjáls að lesa upp dæmin sín af birtingamyndum fötlunar í dægurmenningu.
Hvað myndir þú vilja endurskrifa eða sjá með öðrum hætti? Eða er eitthvað atriði sem þig langar að sjá aftur og aftur og aftur? Viðburðurinn hefst kl. 17.

Opnun söfnunar og umræður - Viðburður á Facebook

Upplestrarviðburður 22. maí 2024 - Viðburður á Facebook

Stofan er staðsett á 1. hæð og aðgengi gott fyrir fólk sem notar hjólastóla, einnig er salerni á sömu hæð með aðgengi fyrir fólk sem notar hjólastóla. Beint á móti innganginum eru tvö bílastæði fyrir fatlaða einstaklinga og einnig eru almenn bílastæði fyrir aftan hús og hjá Listastafni Reykjavíkur, sem er í næsta húsi við okkur.

Rýmið er hluti af verkefninu Stofunni | A Public Living Room, þar sem ólíkir einstaklingar eða hópar fá frjálsar hendur á safninu til endurskapa valið rými eftir sínu höfði í anda Share the Care.

Frekari upplýsingar veitir
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is