Dúkrísta
Dúkristusmiðja

Information about the event

Time
10:00
Price
Free
Target
Young people
Young people

Sumarsmiðja | Dúkristu- og bókbandssmiðja fyrir 13-16 ára

Monday June 27th 2022 - Friday July 1st 2022

Skráning er hafin á sumar.vala.is.
Finnið bókasafnið með því að velja „starfsstað“.

Staðsetning: Okið

Í smiðjunni kynnir Tóta Kolbeinsdóttir okkur fyrir prentlistinni. Hver þátttakandi gerir sína eigin dúkristu. Og síðan lærir hópurinn bókbandsaðferðir og býr til safnmöppu með öllu prentefninu sem búið var til í smiðjunni.
Smiðjan er kennd á íslensku, ensku og pólsku.

Tóta Kolbeinsdóttir er myndlistarkona og er með BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Lukas Gregor Bury er sérfræðingur ungmennastarfsins og OKsins í Borgarbókasafninu.
Prent og vinir var stofnað sem færanlegt listamannarekið prentverkstæði, en hefur nú höfuðstöðvar sínar í Laugarnesinu. Meðlimir hópsins hafa verið áberandi í listheiminum undanfarin ár.

Sjá viðburð á Facebook hér.

Nánari upplýsingar veitir:
Lukas Gregor Bury, sérfræðingur
lukas.gregor.bury@reykjavik.is | 411 6187