Fræðsla fyrir 8-12 ára
Bókasöfn eru mikilvægur griðastaður í erli dagsins. Þangað er alltaf gott að koma – og það kostar ekkert! Á safninu geta krakkar sótt sér innblástur og tekið þátt í skapandi og lestrarhvetjandi verkefnum.
Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreytta og spennandi fræðslu fyrir krakka í 3. – 7. bekk:
Viljið þið kynna ykkur alla þá möguleika sem Verkstæðið býr yfir? Leyfa krökkunum að prófa þrívíddarprentara, læra forritun með aðstoð Minecraft eða leika með MakeyMakey? Við tökum vel á móti ykkur á Verkstæði Borgarbókasafnsins.
Allir eiga sína sögu og menningu. Menningarmót fara ýmist fram á Borgarbókasafninu eða í skólanum, en þar segja og sýna krakkar frá sínum menningarheimum – notaleg og skemmtileg samverustund þar sem allir fá að njóta sín.
Myndasögusýningar eða Þetta vilja börnin sjá! – við bjóðum upp á leiðsagnir um ýmsar spennandi sýningar á safninu.
Kanntu á bókasafnið þitt? Við bjóðum að sjálfsögðu upp á hefðbundnar safnkynningar þar sem við kynnum bókasafnið fyrir krökkunum og sýnum þeim hvar best er að leita að spennandi bókum.
Við erum líka með ýmislegt skemmtilegt í boði fyrir krakka eftir að skólatíma lýkur. Tilraunaverkstæðið stendur fyrir klúbbum, við bjóðum upp á heimanámsaðstoðina Heilahristing í samvinnu við nokkra skóla, auk þess sem við hvetjum krakka á öllum aldri til þess að nýta sér aðstöðuna á Borgarbókasafninu til þess að hitta vini sína, læra, leika sér og slappa af eftir að skóladegi lýkur.
Fáið frekari upplýsingar og bókið fræðslu með því að senda tölvupóst á fraedsla@borgarbokasafn.is eða hringja á söfnin!
Verkefnastjóri barna- og unglingastarfs er Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is.