Bókasnakk | Fræðsla að vori

 

Bókakynning fyrir 5.-7.bekk 
Að vori bjóðum við börnunum í 5. - 7. bekk í kynningu og spjöllum við þau um nýjar og áhugaverðar bækur. Börnin fá smá smakk á öllu því sem okkur finnst mest spennandi fyrir þau í þeim tilgangi ýfa upp lestrarhungrið fyrir sumarið. Í kjölfarið kynnum við sumarlestur safnsins og í lokin skoðum við saman barnadeildina þar sem við sýnum þeim bækur og hjálpum þeim að finna eitthvað skemmtilegt að lesa. 

Opnað verður fyrir bókanir eftir páska.

Við hvetjum kennara allra skólastiga til að kynna sér hvað menningarhús Borgarbókasafnsins hafa upp á að bjóða og hafa heimsóknir á bókasafnið sem fastan lið í kennslunni. Söfnin eru sannkallaðir griðastaðir fyrir börn þar sem þau geta leitað eftir afþreyingu, hitt vini sína, unnið heimavinnuna eða tekið þátt í skapandi verkefnum. Við bjóðum hópum upp á að bóka heimsóknir fyrir skólahópa og frístundaheimili þar sem starfsmaður safnsins tekur á móti hópnum og sýnir það besta sem bókasafnið hefur upp á að bjóða hverju sinni.

Nánari upplýsingar um safnfræðsluna veita barnabókaverðir á hverjum stað.
Hægt er að senda fyrirspurnir á fraedsla@borgarbokasafn.is

Verkefnastjóri barnastarfs er Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, ingibjorg.osp.ottasrsdottir@reykjavik.is