Menning og fræðsla í boði fyrir 13 ára +

Kunna nemendur þínir á þrívíddarprentara? Eða viltu gera hlaðvarpsþátt með þeim?

Menningarhús Borgarbókasafnsins eru stútfull af spennandi tækifærum í fræðslu og verkefnum fyrir ungmenni frá þrettán ára aldri.

Auk hefðbundinnar safnfræðslu og kynningar á fjölbreyttri starfsemi safnsins býður safnið upp á:

  • Kynningar á myndasögu- og unglingadeildinni, sem er afar vinsæl hjá þessum aldurshópi
  • Verkstæðið, þar sem hægt er að prófa ýmis tól og tæki 
  • Ritsmiðjur af ýmsum toga 
  • Stefnumót við rithöfunda
  • Kompuna, hlaðvarpsstúdíó, sem opin er öllum sem eiga bókasafnskort. 

Bókasafnskort eru ókeypis fyrir alla undir 18 ára aldri. 


Verið velkomin á Borgarbókasafnið!  

 

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is