Íslensku bókmenntaverðlaunin 2019

Íslensku bókmenntaverðlaunin | Bókalisti

1. desember var að venju tilkynnt um þau bókmenntaverk sem tilnefnd eru til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Félag íslenskra bókaútgefenda veitir verðlaunin í janúar ár hvert og eru verðlaun veitt í flokki fagurbókmennta, fræðibóka og rita almenns eðlis og, síðan 2013, fyrir barna- og ungmennabækur. Tilnefningarhátíðin fór fram á Kjarvalsstöðum og í ár voru eftirfarandi bækur tilnefndar:

Fagurbókmenntir

Bergþóra Snæbjörnsdóttir: Svínshöfuð (Benedikt bókaútgáfa)
Bragi Ólafsson: Staða pundsins (Bjartur)
Guðrún Eva Mínervudóttir: Aðferðir til að lifa af (Bjartur)
Sölvi Björn Sigurðsson: Selta - Apókrýfa úr ævi landlæknis (Sögur útgáfa)
Steinunn Sigurðardóttir: Dimmumót (Mál og menning)

Fræðibækur og rit almenns efnis

Jón Viðar Jónsson: Stjörnur og stórveldi á leiksviðum Reykjavíkur 1925 - 1965 (Skrudda)
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir: Lífgrös og leyndir dómar – Lækningar, töfrar og trú í sögulegu ljósi (Vaka-Helgafell)
Páll Baldvin Baldvinsson: Síldarárin 1867-1969 (JPV útgáfa)
Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir: Jakobína – saga skálds og konu (Mál og menning)
Unnur Birna Karlsdóttir: Öræfahjörðin – Saga hreindýra á Íslandi (Sögufélag)

Barna- og ungmennabækur

Arndís Þórarinsdóttir: Nærbuxnanjósnararnir (Mál og menning)
Bergrún Íris Sævarsdóttir: Langelstur að eilífu (Bókabeitan)
Hildur Knútsdóttir: Nornin (JPV útgáfa)
Lani Yamamoto: Egill spámaður (Angústúra)
Margrét Tryggvadóttir: Kjarval – málarinn sem fór sínar eigin leiðir (Iðunn)

Flokkur
UppfærtMiðvikudagur, 10. júní, 2020 12:57
Materials