Bækurnar sem tilnefndar eru til Fjöruverðlaunanna í ár
Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna kynntar í dag

Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, hafa verið veitt árlega frá árinu 2007 í þremur flokkum; fyrir fagurbókmenntir, fyrir fræðibækur og rit almenns eðlis og í flokki barna- og unglingabókmennta. Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna voru kynntar við hátíðlega athöfn í Borgarbókasafninu í Grófinni.
 

Tilnefningar að þessu sinni hljóta:

Í flokki fagurbókmennta

Svanafólkið eftir Kristínu Ómarsdóttur

Okfruman eftir Brynju Hjálmsdóttur

Svínshöfuð eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur

 

Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis

Öræfahjörðin - Saga hreindýra á Íslandi eftir Unni Birnu Karlsdóttur

Jakobína – Saga skálds og konu eftir Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur

Listin að vefa eftir Ragnheiði Björk Þórsdóttur

 

Í flokki barna- og unglingabókmennta

Kjarval – málarinn sem fór sínar eigin leiðir eftir Margréti Tryggvadóttur

Kennarinn sem hvarf eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur

Villueyjar eftir Ragnhildir Hólmgeirsdóttur


Yfirlýstur tilgangur verðlaunanna er að stuðla að aukinni kynningu á ritverkum kvenna og hvetja konur í rithöfundastétt til dáða. Við óskum þeim sem hlutu tilnefningar innilega til hamingju!

Flokkur
UppfærtFöstudagur, 7. janúar, 2022 14:30
Materials