Bækurnar sem tilnefndar voru til Viðurkenningar Hagþenkis
Bækurnar sem tilnefndar voru til Viðurkenningar Hagþenkis

Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis

Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis voru kynntar miðvikudaginn 5. febrúar af formanni Hagþenkis, Svanhildi Kr. Sverrisdóttur, í Borgarbókasafninu Grófinni.

Tilnefningar hlutu að þessu sinni eftirfarandi:

Andri Snær Magnason

Um tímann og vatnið. Mál og menning.

Einstaklega vel skrifuð og áhrifarík bók sem fléttar umfjöllun um loftslagsbreytingar af mannavöldum við persónulega reynslu, fræði og alþjóðlega umræðu á frumlegan hátt.

 

Árni Einarsson

Tíminn sefur - Fornaldargarðarnir miklu á Íslandi. Mál og menning.

Í máli og glæsilegum myndum er sjónum beint að lítt þekktum leyndardómi Íslandssögunnar, fornaldargörðunum miklu, á ljósan og lifandi hátt.

 

Árni Heimir Ingólfsson

Tónlist liðinna alda - Íslensk handrit 1100–1800. Crymogea.

Falleg og vönduð bók sem veitir innsýn í forna tónlist Íslendinga í máli, myndum og tónum og breytir viðteknum hugmyndum um söngleysi þjóðar fyrr á öldum.

 

Björk Ingimundardóttir

Prestaköll, sóknir og prófastsdæmi á Íslandi I–II. Þjóðskjalasafn Íslands.

Yfirgripsmikið uppflettirit ásamt kortum sem auðveldar yfirsýn yfir sögu landsins og á eftir að nýtast í margvíslegum rannsóknum um langan aldur. Sagnfræðilegt stórvirki.

 

Haukur Arnþórsson

Um Alþingi - Hver kennir kennaranum? Haukur Arnþórsson.

Frumleg og beinskeytt greining á gögnum um störf löggjafans. Athyglisvert framlag til gagnrýninnar umræðu um stjórnmál á Íslandi.

 

Margrét Tryggvadóttir

Kjarval - Málarinn sem fór sínar eigin leiðir. Iðunn.

Í bókinni er saga manns og aldarfars tvinnuð saman við myndlist af sérstakri næmni sem höfðar til fólks á öllum aldri.

 

Ragnheiður Björk Þórsdóttir

Listin að vefa. Vaka–Helgafell.

Bókin leiðir lesendur inn í undurfallegan heim vefiðnar og veflistar. Skýr framsetning á flóknu efni, studd frábærum skýringarmyndum.

 

Rósa Eggertsdóttir

Hið ljúfa læsi - Handbók um læsiskennslu fyrir kennara og kennaranema. Rósa Eggertsdóttir.

Metnaðarfull og vönduð samantekt á rannsóknum, hugmyndafræði og kennsluháttum. Kærkomin handbók, gerð af innsæi, þekkingu og reynslu. 

 

Sigrún Huld Þorgrímsdóttir

Ný menning í öldrunarþjónustu. Ömmuhús.

Tímabær hugvekja um öldrunarþjónustu með manngildi í fyrirrúmi, skrifuð af ástríðu og þekkingu.

 

Unnur Birna Karlsdóttir

Öræfahjörðin - Saga hreindýra á Íslandi. Sögufélag.

Vandað og aðgengilegt sagnfræðirit um einkennisdýr austuröræfanna, einstaka sögu þeirra og samband við þjóðina.

 

Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningar fyrir fræðirit, námsgöng eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings og árið 2006 var tekin upp sú nýbreytni að tilnefna tíu höfunda og bækur sem til greina kæmu. Viðurkenningaráð Hagþenkis, skipað fimm félagsmönnum stendur að valinu en það hóf störf um miðjan október og fundaði vikulega fram yfir miðjan janúar.

Viðurkenningaráðið er skipað fimm félagsmönnum til tveggja ára í senn og í því sátu nú Ásta Kristín Benediksdóttir, Kolbrún S. Hjaltadóttir, Lára Magnúsdóttir, Snorri Baldursson og Þórólfur Þórlindsson.

Viðurkenning Hagþenkis verður svo veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í byrjun mars og felst í sérstöku viðurkenningarskjali og 1.250.000 kr. Laugardaginn 15. febrúar frá kl. 13:00 standa Hagþenkir og Borgarbókasafnið svo fyrir kynningu á tilefndum bókum í samstarfi við höfunda þeirra í Grófinni.

Flokkur
UppfærtMánudagur, 16. október, 2023 16:00
Materials