
Samkeppni | Langar þig að skrifa og myndlýsa sögu fyrir Jóladagatalið í ár?
Við óskum eftir umsóknum frá rit- og myndhöfundum fyrir jólasögu Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar 2022
Frá árinu 2016 hefur Borgarbókasafnið birt jóladagatal fyrir börn á leikskóla- og grunnskólaaldri á miðlum safnsins þar sem kennarar, foreldrar og börn geta lesið saman einn kafla á dag frá 1. – 24. desember. Jóladagatalið er aðgengilegt á vefsíðu og Facebook síðu Borgarbókasafnsins og á vef og Facebooksíðu Bókmenntaborgarinnar. Sagan er einnig lesin inn í hlaðvörp Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar.
Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst n.k.
Í umsókn er æskilegt að setja fram hugmynd að efnistökum sögunnar og drög að teikningum og/eða dæmi um fyrri verk, en ekki er gerð krafa um fullbúna sögu á þessu stigi. Vinsamlegast sendið umsóknina á gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is. Valnefnd fer yfir umsóknir og mun niðurstaða hennar liggja fyrir 15. ágúst.
17. október – lokaskil á fullbúinni sögu og myndum
Rit- og myndhöfundar þurfa að skila inn fullbúinni sögu í 24 köflum, mynd við hvern kafla auk forsíðumyndar 17. október. Boðið er upp á ritstjórn og yfirlestur í ferlinu. Myndefnið verður notað til kynningar á miðlum safnsins og Bókmenntaborgarinnar og á prentuðu efni, s.s. bókamerkjum, veggspjöldum og dagatölum sem stillt er upp í söfnunum.
Rit- og myndhöfundar fá greiddar 350.000 kr. hvor fyrir söguna og teikningarnar, ef höfundur gerir bæði sögu og myndir fær hann greiddar 700.000 kr.
Börn sem heimsækja safnið í nóvember og desember fá bókamerkið að gjöf og veggspjöldum verður dreift í nærumhverfi safnanna. Boðið verður upp á jólasögustundir í desember.
Hér má finna jóladagatöl síðustu ára.
Jóladagatalið 2021 er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar og nýsköpunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | s. 411 6115