Leshringurinn 101 | Morgnar í Jenín
Hittumst og spjöllum um skáldsöguna Morgnar í Jenín eftir Susan Abulhawa.
Leshringurinn 101 ætlar lesa bækur frá ýmsum heimshornum þennan veturinn, frá Norðurlöndum, Bretlandi, Rússlandi, Norður-Kóreu, Palestínu, Venesúela og Bandaríkjunum.
Leshringurinn hittist í Grófinni annan þriðjudag í mánuði kl.17:30-18:30. Hugguleg stemning, kaffi og spjall. Leshringurinn er opinn! Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda tölvupóst á Guðrúnu Baldvinsdóttur eða einfaldlega mætið á svæðið.
Umsjón: Guðrún Baldvinsdóttir,
gudrun.baldvinsdottir@reykjavik.is
Dagskrá vetrarins:
8. október Út að stela hestum eftir Per Petterson
12. nóvember Orðspor eftir Juan Gabriel Vásquez
10. desember Heimför eftir Yaa Gyasi
14. janúar Í leyfisleysi eftir Lenu Anderson og farið yfir jólabækurnar
11. febrúar Morgnar í Jenín eftir Susan Abulhawa
10. mars Amsterdam eftir Ian McEwan
14. apríl Plötusnúður Rauða hersins eftir Wladimir Kaminer
12. maí Með lífið að veði eftir Yeonmi Park