Hans Jónatan - Maðurinn sem stal sjálfum sér
Hans Jónatan - Maðurinn sem stal sjálfum sér

Um þennan viðburð

Tími
17:30 - 18:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir
Spjall og umræður

AFLÝST Leshringurinn 101 | Hans Jónatan - Maðurinn sem stal sjálfum sér

Þriðjudagur 6. október 2020

Vinsamlegast athugið að þessum viðburði hefur verið aflýst.
Fjallað verður um bókina í næsta leshring 3. nóvember n.k.

Skráning er á alla viðburði Borgarbókasafnsins og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna.

Sjá nánar HÉR.

•    Staðsetning viðburðar: Torgið, á jarðhæð
•    Hámarksfjöldi gesta: 12 manns
•    Boðið er upp á kaffi. 

Leshringurinn 101 hittist í Grófinni annan þriðjudag í mánuði  kl. 17:30-18:30.  Í leshringnum viljum við skapa huggulega stemningu þar sem við komum saman, sötrum kaffi og spjöllum um bækur.

Í leshring októbermánaðar spjöllum við um bókina Hans Jónatan - Maðurinn sem stal sjálfum sér eftir Gísla Pálsson sem kom út 2014. Sagan um Hans Jónatans er merkileg og varpar ljósi á tengsl Íslands við umheiminn í byrjun 19. aldar. Hann settist að á Djúpavogi, starfaði sem verslunarmaður og bóndi og giftist íslenskri konu. Þau eiga marga afkomendur og gerði höfundur heimildamynd byggða á bókinni 2017 með kvikmyndagerðarmanninum Valdimar Leifssyni.

Dagskráin framundan:

3. nóvember | Glæpur við fæðingu eftir Trevor Noah

8. desember | Saga býflugnanna eftir Maja Lunde

Leshringurinn er opinn! Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda tölvupóst á Guðrúnu Dísi Jónatansdóttur eða einfaldlega mætið á svæðið.  

Við hvetjum góðvini Borgarbókasafnsins til að skrá sig í Bókaklúbbinn okkar á Facebook! Þar deilum við ýmsum bókmenntatengdum viðburðum og oft skapast líflegar umræður um alls kyns bókmenntir. 

HÉR er að finna almennar upplýsingar um leshringi Borgarbókasafnsins...

Umsjón: Guðrún Dís Jónatansdóttir
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is

Bækur og annað efni