Saga býflugnanna eftir Maja Lunde
Saga býflugnanna eftir Maja Lunde

Um þennan viðburð

Tími
17:30 - 18:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir
Spjall og umræður

AFLÝST Leshringurinn 101 | Saga býflugnanna

Þriðjudagur 8. desember 2020

Vinsamlegast athugið að leshringnum hefur verið aflýst.

Skráning er á alla viðburði Borgarbókasafnsins og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna.

Sjá nánar HÉR.

•    Staðsetning viðburðar: Torgið, á jarðhæð
•    Hámarksfjöldi gesta: 12 manns
•    Boðið er upp á kaffi. 

Leshringurinn 101 hittist í Grófinni annan þriðjudag í mánuði  kl. 17:30-18:30.  Í leshringnum viljum við skapa huggulega stemningu þar sem við komum saman, sötrum kaffi og spjöllum um bækur.

Síðasta bókin sem tekin verður til umfjöllunar þetta misserið er bókin Saga býflugnanna eftir norska rithöfundinn Maja Lunde.  Um er að ræða fyrstu bókina í svokölluðum "umhverfis-fjórleik" þar sem höfundur tekst á við stórar spurningar um umhverfismál með verkfærum skáldskaparins. Í bókinni fléttar hún fortíð, nútíð og framtíð saman í þrjá söguþræði sem tengjast saman á óvæntan hátt; England 1852, Bandaríkin 2007 og Kína 2098.

Leshringurinn er opinn og leslisti næsta misseris í mótun! Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda tölvupóst á Guðrúnu Dísi Jónatansdóttur eða einfaldlega mætið á svæðið.  

Við hvetjum góðvini Borgarbókasafnsins til að skrá sig í Bókaklúbbinn okkar á Facebook! Þar deilum við ýmsum bókmenntatengdum viðburðum og oft skapast líflegar umræður um alls kyns bókmenntir. 

HÉR er að finna almennar upplýsingar um leshringi Borgarbókasafnsins...

Umsjón: Guðrún Dís Jónatansdóttir
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is

Bækur og annað efni