Barnabókaball
Það verður hátíðlegt í Grófinni á árlegu barnabókaballi.
Ballið byrjar á því að barnabókahöfundar koma og lesa upp úr bókum sínum í notalegri kaffihúsastemningu á Torginu og barnabókaverðir bjóða gestum upp á heitt kakó og piparkökur. Eftir huggulega kakó- og barnabókastund koma hressir og kátir jólasveinar og skemmta börnunum ásamt Guðna Franzsyni píanóleikara.
Því miður er fullbókað á þennan viðburð.
Dagskrá:
• Fyrsti gluggi jóladagatals Borgarbókasafns opnaður og við fáum að sjá fyrstu myndina að heyra fyrsta kaflan í sögunni Stúlkan sem skemmdi (næstum því) jólin eftir Heiðu Vigdísi Sigfúsdóttur og Joav Gomez Valdez.
• Lára Garðarsdóttir les úr nýútkominni bók sinni Þegar ég verð stór
• Sævar Helgi Bragason les úr nýútkominni bók sinni Sólkerfið okkar - Visindalæsi
• Jólasveinar mæta á svæðið og syngja og skemmta ásamt Guðna Franzsyni í skemmtilegri söngstund. Vonandi getum við dansað saman næsta ár!
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411 6100