Um þennan viðburð

Tími
11:00 - 12:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir
Fræðsla

Bragskinna | Kennsla í bragfræði

Miðvikudagur 13. október 2021

Jafningjafræðsla í bragfræði

Magnea Ingvarsdóttir íslenskukennari og menningarfræðingur leiðbeinir áhugasömum í bragfræði. 

Hentar þeim sem langar að spreyta sig á að yrkja í bundnu máli, byrjendum jafnt sem lengra komnum. Kennslan er meðal annars í formi jafningjafræðslu þar sem þátttakendur geta hjálpað hver öðrum. Hist er á Borgarbókasafninu Árbæ í notalegu umhverfi annan miðvikudag í mánuði kl. 11:00. Allir velkomnir!

Íslensk bragfræði hefur að geyma hefðbundin kveðskap og hefur verið hluti af ljóðagerð Íslendinga frá örófi alda. Strangar reglur gilda í þannig kveðskap, svo sem reglur um ljóðstafi, hrynjanda og rím. Ljóðstafir skiptast í stuðla og höfuðstafi og hrynjandi telur taktbilin. Rímið er svo ýmist, einrím, tvírím eða veggjað rím.

En hversvegna bragfræði? Bragfræðin er ein af undirgreinum innan bókmenntafræðinnar og er ákaflega skemmtileg viðureignar. Hún eykur orðaforðann og um leið fyllir hún fólk stolti við það eitt að kunna að yrkja rétt. Svo hefur hún heldur látið undan síga í vinsældum og því full þörf á að kenna hana.

Nánari upplýsingar og skráning:
Magnea Ingvarsdóttir
maggaidda@simnet.is

Katrín Guðmundsdóttir
Deildarstjóri Borgarbókasafnsins Árbæ
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is