Guttormur Þorsteinsson leiðir hjólatúrinn
Guttormur Þorsteinsson leiðir hjólatúrinn

Um þennan viðburð

Tími
10:00 - 12:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir

Hjólatúr | Stefnumót við skáldin í hverfinu

Laugardagur 15. janúar 2022

Komið með í hressandi og andlega nærandi hjólatúr og hlustið á Guttorm lesa upp ljóð og prósa sem tengjast hverfunum í kringum Kringlumýri. Kynnumst skáldunum í Hlíðunum og Háaleitishverfi, förum aftur í tímann, eltumst við ketti í Kringlunni og ræningja í Öskjuhlíðinni.

Hjólatúrinn hefst við Borgarbókasafnið Kringlunni, framan við inngang safnsins í bílakjallaranum. Þátttakendur eru beðnir að mæta vel útbúnir, í hlýjum fatnaði og á hjólum sem henta veðri og færð hverju sinni. Vinsamlegast mætið tímanlega. Ferðin tekur um eina og hálfa klukkustund og svo vermum við kalda fingur á kaffihúsi í lok ferðar.

Hjólastjórar: Árni Davíðsson hjá Hjólafærni á Íslandi og Guttormur Þorsteinsson, sagnfræðingur og deildarbókavörður á Borgarbókasafninu Kringlunni.

Boðið er upp á hjólatúr með bókmenntalegu ívafi einn laugardagsmorgun í mánuði frá janúar til apríl. Um er að ræða nýtt samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Hjólafærni á Íslandi þar sem boðið er upp á skemmtilega blöndu af útivist, hreyfingu og andlegri næringu. Verkefnið hlaut styrk frá Miðborgarsjóði Reykjavíkurborgar.

Hjólatúrarnir eru ókeypis og öll velkomin að taka þátt.

Skráning fer fram hér fyrir neðan.

Næstu hjólatúrar:

Stefnumót við ljóðskáld í efri byggðum
Hjólatúr um Breiðholtið
Hittumst við Borgarbókasafnið Gerðubergi
Lau. 12.02.22 kl. 10:00-12:00

Stefnumót á kvennaslóðum
Hjólatúr um Miðborgina og Vesturbæinn
Hittumst við Borgarbókasafnið Grófinni
Lau. 12.03.22 kl. 10:00-12:00

Stefnumót á strigaskóm
Hjólatúr fyrir alla fjölskylduna
Hittumst við Borgarbókasafnið Sólheimum
Lau. 09.04.22 kl. 10:00-12:00

Nánari upplýsingar veita:

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is

Sesselja Traustadóttir, framkvæmdastýra Hjólafærni á Íslandi
hjolafaerni@hjolafaerni.is

Hjólafærni á Íslandi  Landssamtök hjólreiðamanna