Um þennan viðburð
Leshringurinn Sveigur
Valin er ein bók í hverjum mánuði sem hópurinn les og fjallar síðan um á næsta fundi. Lesin eru nýleg skáldverk eftir bæði íslenska og erlenda höfunda sem og einstaka ævisaga.
Fyrsti fundur hópsins að haust er í lok ágúst og segir þá hver og einn frá því sem staðið hefur uppúr af þeim bókum sem hann las yfir sumarið. Það sama gerum við á fundi hópsins í lok janúar og ræðum þá hvaða bækur urðu fyrir valinu yfir hátíðarnar.
Leshringurinn hittist ekki í desember, júní og júlí.
Hægt er að skrá sig í leshringinn hvenær sem er ársins, svo framarlega sem það er laust pláss.
Fundir fara fram kl. 17:15-18:30 á Borgarbókasafni Spönginni 2. hæð:
Vor 2022
17. janúar - Jólabækur
21. febrúar - Af manna völdum / Álfrún Gunnlaugsdóttir
21. mars - Ævisögur og ljóð / Vilborg Dagbjartsdóttir
11. apríl - Smartís / Gerður Kristný
23. maí - Oddaflug / Guðrún Helgadóttir
Umsjón með hópnum og frekari upplýsingar:
Ásta Halldóra Ólafsdóttir, deildarbókavörður
asta.halldora.olafsdottir@reykjavik.is