SamSuða
SamSuða

Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Bókmenntir
Sýningar

SamSuða Friðgeirs Einarssonar

Laugardagur 19. mars 2022 - Sunnudagur 24. apríl 2022

Rithöfundurinn Friðgeir Einarsson velur verk úr Artóteki Borgarbókasafnsins, skrifar um þau texta og saman mynda verk og textar sýningu sem sett er upp í Borgarbókasafninu Kringlunni. Sýningin opnar laugardaginn 19. mars kl. 14 og stendur til 24. apríl. Öll velkomin.

Listamenn sem eiga verk á sýningunni:

Guðný Hrönn Antonsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
Kristín Hauksdóttir
Kristín Pálmadóttir
Wiola Ujazdowska
 

SamSuða er yfirskrift sýningarraðar í Borgarbókasafninu Kringlunni. SamSuða er stefnumót skapandi einstaklinga þar sem skáld, eitt eða fleiri, velja verk úr Artóteki Borgarbókasafns og skrifa um þau stuttan texta. Verkin geta verið eftir einn og sama listamanninn eða blanda af verkum eftir ýmsa. Úr þessu verður hálfgerð SamSuða sem sett er upp á sýningu.

Í Artótekinu er til leigu og sölu myndlist eftir íslenska listamenn, sem allir eru félagsmenn í Sambandi íslenskra myndlistamanna. Markmiðið með Artótekinu er að kynna notendum Borgarbókasafns og öðrum íslenska samtímalist og gefa þeim kost á að leigja eða eignast listaverk á einfaldan hátt.

Sýningin er opin á afgreiðslutíma safnsins.

Nánari upplýsingar veitir:
Guðríður Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri
gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is | s. 691 2946

Bækur og annað efni