Skrifstofan - Ritlistarnámskeið
Skrifstofan - Ritlistarnámskeið

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 18:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir
Fræðsla

Skrifstofan | Að skrifa lengri texta

Miðvikudagur 3. nóvember 2021

Langar þig að að skrifa lengri texta? Gengurðu jafnvel með skáldsögu i maganum? Á námskeiðinu gerum við stílæfingar og liðkum skrifvöðvana en könnum um leið að hverju er gott að huga þegar við tökumst á við lengri textasmíði en þá sem við höfum áður glímt við í smásögum, örsögum eða ljóðum.

Hvar byrjum við? Hvar fáum við hugmyndir og hvernig vitum við hvort hugmyndin er nógu stór fyrir lengri sögu? Við vinnum með kveikjur og reynum fyrir okkur í persónusköpun, átökum, skoðum hefðbundna byggingu skáldsagna, veltum fyrir okkur söguþræði og fléttu, sögusviði og öðrum byggingarsteinum lengri texta. Nemendur skila kennara efni eftir hvern tíma og fá endurgjöf.

3. nóvember: Persónuleikarnir. Karakterdrifin frásögn og persónusköpun  - hvernig sköpum við trúverðugar, heillandi persónur?

Kennt er frá 16.30 -18.30 á miðvikudögum.

Dagskrá námskeiðsins

Nánari upplýsingar veitir:
Sunna Dís Másdóttir
sunnadis@gmail.com