Bókaverðlaun barnanna | Tilnefningahátíð
Staðsetning: Bókatorgið, 1. hæð
Hámarksfjöldi: 17 - Vinsamlegast bókið sæti hér fyrir neðan.
Okkur langar til þess að bjóða bókelskandi barnafjölskyldum og öðrum bókaormum í æsispennandi og fjöruga hátíð á sumardaginn fyrsta.
Við tilkynnum hvaða fimm íslenskar og fimm þýddar bækur börnin völdu sem áhugaverðustu bækur síðasta árs. Þessar bækur komast áfram í kosningu KrakkaRÚV, Sögur – verðlaunahátíð barnanna sem verður opnuð með hátíðlegri athöfn á þessari hátíð. Í framhaldinu munum við svo verðlauna 10 heppin börn sem tóku þátt í Bókaverðlaunum barnanna.
Að lokum um bráðfjörugi trúðurinn Silly Suzy frá Bandaríkjunum skemmta okkur. Henni finnst mjög gaman að djöggla, læra íslensku og kynnast nýjum vinum!
Allir velkomnir!
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | s. 411 6146