Börn
Tónlist
Skapandi tækni
Haustfrí | Figure tónlistarsmiðja
Þriðjudagur 26. október 2021
Viltu læra allt sem þarf til þess að geta samið þína eigin tónlist á iPad?
Í þessari smiðju munum við notast við tónlistarforritið Figure en forritið er mjög einfalt í notkun og frábært fyrir fólk á öllum aldri. Möguleikarnir með Figure eru endalausir - með fjölbreyttu úrvali af innbyggðum hljóðfærum og töktum.
Þátttakendur geta svo vistað tónlistina sem þeir semja og haldið áfram að vinna með á afraksturinn heima.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146