Börn
Ungmenni
Barnamenningarhátíð | Dr. Bæk
Laugardagur 8. maí 2021
Er kominn tími á ástandsskoðun hjá Dr. Bæk? Hann mætir með farandskoðunarstöðina sína, pumpu, olíur og nokkra skiptilykla. Af þessu tilefni hvetjum við alla hjólaeigendur að koma með hjólhesta sína í fría ástandsskoðun. Doktorinn skoðar hjólin og vottar heilsu þeirra. Alls konar spurningar leyfðar.
Viðburðurinn er á dagskrá Barnamenningarhátíðar í samstarfi við samtökin Hjólafærni á Íslandi.
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Nánari upplýsingar:
Herdís Anna Friðfinnsdóttir
herdis.anna.fridfinnsdottir@reykjavik.is