Um þennan viðburð

Tími
11:30 - 12:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Börn

Lesið fyrir hund

Laugardagur 11. september 2021

Sólheimasafn býður upp á Lesið fyrir hund sem eru lestrarstundir fyrir læs börn á grunnskólaaldri.  Stundirnar eru hugsaðar til þess að auka öryggi barna við lestur,  þau lesa fyrir þjálfaðan hund sem hjálpar þeim að gera lestrarstundina  afslappaða og þægilega og án nokkurrar gagnrýni. Börnin taka með sér bók eða fá lánaða á bókasafninu.

Athugið að lestrarstundirnar eru ekki fyrir börn sem eru hrædd við hunda.    

Næstu lestrarstundir verða 9. okt., og 13. nóv. kl. 11.30-12.30 og hver lestrarstund er 20 mínútur. Við munum hafa samband við við þátttakendur fyrir sögustundurnar og nánari tímasetning verður þá ákveðin. 

Skráning er hér fyrir neðan og forföll þarf að boða með fyrirvara.     

Upplýsingar veitir Sigrún Jóna Kristjánsdóttir
sigrun.jona.kristjansdottir@reykjavik.is
s. 411-6160