Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Börn
Sýningar
Ungmenni

Þín eigin bókasafnsráðgáta | Bókaðu hóp í ratleik!

Laugardagur 2. október 2021 - Laugardagur 30. apríl 2022

Hér skráir þú hópinn þinn til leiks! Hvaða gátu langar ykkur að leysa?

Ævintýraráðgátan – létt og skemmtileg!
- Viðmiðunaraldur: 7+ 
- Tími: 30-40 mínútur

Vísindaráðgátan – reynir á þolinmæði og samvinnu hópsins
- Viðmiðunaraldur: 12+ 
- Tími: 40-50 mínútur

Hrollvekjuráðgátan – fyrir þau sem þora að flækja hlutina örlítið meira!
- Viðmiðunaraldur: 12+ 
- Tími: 40-50 mínútur

Þú velur dag- og tímasetningu og ráðgátuna sem hentar hópnum þínum best. Og það er ekkert sem mælir á móti því að takast á við allar þrjár ráðgáturnar. Við viljum fá ykkur sem oftast í heimsókn!

Od teraz biblioteczną zagadkę można rozwiązać również po polsku! Rejestracja w linku poniżej. 

2-6  þátttakendur geta verið í hverjum hópi
Við mælum með því að fullorðnir spili með börnum yngri en 12 ára

Þegar þú mætir með hópinn þinn færðu afhentan bréfapakka í afgreiðslu bókasafnsins. Í honum er að finna vísbendingarnar sem þið þurfið á að halda til að leysa ráðgátuna. Ef þið lendið í vandræðum, getið þið snúið ykkur til starfsfólks í afgreiðslu sem lumar eflaust á auka vísbendingum sem hjálpa ykkur á næsta áfangastað í ratleiknum.

Þátttaka í leiknum hentar einstaklega vel á farsóttartímum þar sem fólk tekur þátt í sinni „búbblu“ og vel er hugað að sóttvörnum. Gangi ykkur vel! 

Skráning hér fyrir neðan.

Sjá hér allar upplýsingar á einum stað um sýninguna, ratleikinn og tengda viðburði...

Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, deildarbókavörður
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | s. 411 6170