Kakó Lingua | Borðspil með Emblu
Embla Vigfúsdóttir er vöru- og leikjahönnuður með ástríðu fyrir borðspilum, bæði að spila þau og búa þau til.
Hún býður börnum á öllum aldri að koma og spila með fjölskyldum sínum og vinum. Embla er gestum innan handar ef á þarf að halda en mörg spilanna krefjast engrar tungumálakunnáttu og því tilvalið að spila saman þótt móðurmálin séu ekki þau sömu.
Á kakó lingua viðburðum kynnum við hvert annað fyrir nýjum tungumálum í gegnum einföld og skemmtileg verkefni í hvetjandi og notalegu umhverfi. Viðburðirnir eru allir staðsettir á Borgarbókasafninu í Kringlunni og þátttaka er ókeypis. Þessi viðburður er fyrir börn á öllum aldri sem langar að læra ný orð á skemmtilegan hátt, en þau yngstu gætu gætu þurft á hjálp frá foreldri að halda.
Síðast, en alls ekki síst, er alltaf heitt kakó á boðstólnum.
Nánari upplýsingar veitir:
Hildur Björgvinsdóttir | verkefnastjóri - viðburðir og fræðsla.
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is