Dátar í Reykjavíkurhöfn
Ljósmynd: Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Um þennan viðburð

Tími
17:15 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla
Kaffistundir

Hommarnir á höfninni

Mánudagur 22. mars 2021

Hernámsárunum á Íslandi fylgdi hið svokallaða "ástand", náin samskipti erlendu dátanna og íslenskra stúlkna. Særún Lísa Birgisdóttir þjóðfræðingur segir frá samskiptum hermanna og íslenskra pilta, sem einnig viðgengust, þótt ekki hafi þau farið eins hátt.

Í skugga ástandsins eins og við flest þekkjum það blómstraði menning sem litlar sögur fóru af. Ef til vill mætti kalla það hinsegin ástandið. Eftir að landið var hernumið opnuðust dyr inn í nýjan heim hjá fjölda manna sem fram til þessa höfðu lifað í einangrun og felum með kynhneigð sína. Hafnarsvæðið og þar um kring ásamt ný uppsprottnum kaffi- og dansstöðum urðu þeir staðir þar sem karlmenn hittust og fáa grunaði nokkuð, enda augu flestra á samskiptum hinna erlendu dáta við íslenskar stúlkur.

Særún Lísa Birgisdóttir er með MA-próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands. Í rannsóknum sínum hefur hún horft til þess hvernig hinir ýmsu jaðarhópar birtast í sögnum, þjóðtrú og orðræðu hvers tímabils með sérstakri áherslu á samkynhneigða sem voru sannkallað huldufólk.

Viðburðurinn á Facebook

Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.

Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is