people playing games

Um þennan viðburð

Tími
11:30 - 13:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla
Tungumál

Spilum og spjöllum á íslensku

Laugardagur 12. mars 2022

Lærðu íslensku með okkur og hittu fleiri sem eru líka að læra - þátttaka er ókeypis. Leiðbeinendur hafa mikla reynslu í að kenna íslensku sem annað mál. Við spilum orðaleiki, spjöllum og skemmtum okkur vel.

Við eigum spil fyrir öll þrep og leiðbeinendur aðstoða. Öll geta verið með, líka þau sem tala ekki mikla íslensku!

Leiðbeinandi dagsins í Grófinni heitir Hildur Loftsdóttir, rithöfundur, blaðamaður og kennari. Hildur hefur búið í fjórum löndum og hefur gaman af tungumálum. Undanfarin 11 ár hefur Hildur starfsað sem íslenskukennari, fyrst í New York og núna hjá Tin Can Factory í Reykjavík. Hildur hefur skrifað nokkrar frábærar barnabækur og hlaut árið 2021 hljóðbókarverðlaunin fyrir bók sína Eyðieyjan í flokki barna -og ungmennabókmennta.

Facebook

Hildur Loftsdóttir


Nánari upplýsingar veitir:
Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is