Spilum og spjöllum Gerðubergi

Um þennan viðburð

Tími
17:30 - 19:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla
Tungumál

Spilum og spjöllum á íslensku

Miðvikudagur 13. apríl 2022

Lærðu íslensku með okkur og hittu fleiri sem eru líka að læra - þátttaka er ókeypis. Leiðbeinendur hafa mikla reynslu í að kenna íslensku sem annað mál. Við spilum orðaleiki, spjöllum og skemmtum okkur vel.

Við eigum spil fyrir öll þrep, leiðbeinendur aðstoða. Öll geta verið með, þótt þau tali ekki mikla íslensku!

Leiðbeinandi dagsins í Gerðubergi heitir Hildur Loftsdóttir, rithöfundur, blaðamaður og kennari. Hildur hefur búið í fjórum löndum og hefur gaman af tungumálum. Undanfarin 11 ár hefur Hildur starfað sem íslenskukennari, fyrst í New York og núna hjá Tin Can Factory í Reykjavík. Hildur hefur skrifað nokkrar frábærar barnabækur og hlaut árið 2021 hljóðbókarverðlaunin fyrir bók sína Eyðieyjan í flokki barna -og ungmennabókmennta.

Facebook 

Hildur Loftsdóttir
Nánari upplýsingar veitir:
Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is