Spilum og spjöllum Spöngin

Um þennan viðburð

Tími
11:30 - 13:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla
Tungumál

Spilum og spjöllum á íslensku

Laugardagur 26. febrúar 2022

Lærðu íslensku með okkur og hittu fleiri sem eru líka að læra - þátttaka er ókeypis. Leiðbeinendur hafa mikla reynslu í að kenna íslensku sem annað mál. Við spilum orðaleiki, spjöllum og skemmtum okkur vel.

Við eigum spil fyrir öll þrep og leiðbeinendur aðstoða. Öll geta verið með, líka þau sem tala ekki mikla íslensku!

Leiðbeinandinn sem tekur á móti þátttakendum í Spönginni í dag heitir Sigurður Hermannsson. Hann er málvísindamaður með brennandi áhuga á tungumálum og kennir íslensku sem annað mál. Sigurður (Siggi) stofnaði vefsíðuna https://www.icelandicmadeeasier.com til að allir sem vilja læra íslensku hefðu ókeypis aðgang að efni og tækjum. Þegar Siggi er ekki að kenna íslensku á bókasafninu eða í einkatímum heima hjá sér er hann líklegast að vinna í íslenskri orðabók wordreference.com í sjálfboðastarfi.

Facebook 

Sigurður Hermannsson
Nánari upplýsingar veitir:
Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is