Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Fræðsla

Tækniaðstoð | Tölvur og snjalltæki

Fimmtudagur 14. október 2021


Hvers konar aðstoð er í boði?

Við aðstoðum þig meðal annars við að nýta tölvur/snjalltæki til að:

  • Leita að upplýsingum á netinu
  • Finna vefsíður og eyðublöð
  • Panta vörur og sækja afþreyingu 
  • Skrá þig sem notanda á hinum ýmsu miðlum
  • Taka myndir og senda áfram í tölvupósti eða deila á samfélagsmiðlum
  • Og hvað það sem kann að koma upp hverju sinni

Hvað þarf ég að koma með?

Æskilegt er að koma með eigin fartölvu, snjallsíma og/eða spjaldtölvur eða það sem þú notar helst – en á söfnunum er einnig aðgangur að spjaldtölvum og borðtölvum.

Það eru starfsmenn safnsins sem aðstoða. Þeir eru ekki sérfræðingar um tölvu- eða tæknimál en eru vel að sér í ýmsu því varðandi þar sem stór hluti vinnu á bókasafni fer fram á tölvum.

Alla fimmtudaga kl. 14:00–16:00.

Tækniaðstoðin er ókeypis og opin öllum!