Fræðsla
Teikninámskeið
Þriðjudagur 8. febrúar 2022
Námskeið fyrir 16 ára og eldri sem hafa áhuga á teikningu.
Námskeiðið er þriðjudagana 1. og 8. febrúar og miðað er við að þátttakendur mæti báða dagana. Farið verður yfir ýmis grunnatriði í teikningu með áherslu á andlitsteikningu. Ekki er krafist undirbúnings eða kunnáttu og allir velkomnir sem áhuga hafa á að spreyta sig í teikningu.
Kristín Arngrímsdóttir myndlistarmaður kennir. Allt efni er á staðnum og ókeypis þátttaka.
Nánari upplýsingar:
Katrín Guðmundsdóttir