Um þennan viðburð
Netviðburður | Salka Sól á handverkskaffi
Salka Sól sló í gegn um jólin með sinni fyrstu prjónabók sem hún gaf út ásamt Sjöfn Kristjánsdóttur, prjónahönnuði, í samstarfi með Stroff.is.
Salka Sól er gestur okkar á handverksskaffi í Gerðubergi og ætlar að deila með okkur sinni prjónasögu, sýna okkur verkefnin á prjónunum, segja frá bókinni og ýmsu fleira.
Takið verkefnin ykkar endilega með og fyllist innblæstri af ævintýrum Sölku Sólar.
Skráning á viðburðinn er hér fyrir neðan.
Þeir sem ekki eiga heimangengt geta fylgst með beinu streymi á Facebook síðu safnsins - https://www.facebook.com/Borgarbokasafnid/live
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Um kaffistundirnar:
Á kaffistundunum okkar er komið víða við, hvort sem þú hefur áhuga á handverki, bókmenntum, heimspeki eða þjóðlegum fróðleik svo fátt eitt sé nefnt. Við fáum til okkar góða gesti sem kynna hugðarefni sín í máli og myndum auk þess sem áheyrendur taka virkan þátt í umræðunum.
Nánari upplýsingar um viðburðinn veitir:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is
s. 6980298