New in Iceland

Um þennan viðburð

Tími
15:00 - 16:00
Verð
Frítt
Spjall og umræður

Aðgengi að húsnæði | Torgið

Þriðjudagur 19. október 2021

Getur þú sagt mér hvar ég finn húsnæðismarkaðinn? Týnist þú í upplýsingaflæði hversdagsins eða finnst þér þú ekki hafa aðgengi að þeim upplýsingum sem þú þarft á að halda?

Á Torginu fer fram opið samtal um aðgengi að upplýsingum til að fóta þig á húsnæðismarkaðunum. Fulltrúi frá Leigjendaaðstoðinni ræðir sérstaklega við okkur um stöðu leigjenda og rétt þeirra eins og hann er samkvæmt í húsaleigulögum. 

Í samstarfi við New in Iceland finnum við staðina sem geyma þekkingu um húsnæðismarkaðinn. Við ræðum hvernig við náum skilningi á nýjum aðstæðum og hvaða möguleika við höfum til að skilgreina hlutverk okkar í samfélaginu.

Samtalið er opið öllum, til að hlusta og taka þátt. Kíktu við, þú gæti uppgötvað eitthvað nýtt. 

Öll velkomin og þátttaka ókeypis.  


Viðburðurinn á Facebook.

New in Iceland má kynna sér frekar hér.


Ef þú er með eigið málefni sem þig langar að ræða á bókasafninu, þá erum við opin fyrir nýjum hugmyndum. 

Frekari upplýsingar:
Dögg Sigmarsdóttir | Verkefnastjóri borgaraleg þátttaka
dogg.sigmasdottir@reykjavik.is