Kynning á lýðræðisvinnustofu PaCe

Um þennan viðburð

Tími
09:00 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Spjall og umræður

Hvernig sköpum við samfélag fyrir alla?

Þriðjudagur 26. október 2021

Hvernig sköpum við opið samfélag þar sem enginn er skilinn eftir - samfélag fyrir alla byggt á jafnræði og velferð óháð bakgrunni? Treystum við stjórnvöldum til að standa vörð um grunnréttindi okkar í lýðræðissamfélagi og lýðheilsu á sama tíma? Boðið er til opins samtals milli borgara og fræðasamfélagsins um traust og virka þátttöku borgara til að byggja upp samfélag þar sem allir hafi aðgang að gæðum samfélagsins.

Bókasafnið er eitt af fáum innanhúss almenningsrýmum, þar sem við þurfum ekki að réttlæta veru okkar í með nokkrum hætti - opinn  vettvangur þar sem allir fá að vera eins og þeir eru og geta tekið þátt í að móta. Á bókasafninu er hægt að brjóta upp innrammaða veruleika, tengja borgarbúa saman og miðla upplýsingum og þekkingu milli ólíkra samfélagshópa í umhverfi sem fólk treystir.  

Á fundinum verða kynntar rannsóknir sem snerta á eftirfarandi málefnum:

  • Fjölbreytileiki, samskipti og fjölmenning á tímum breytinga. Þverfagleg nálgun um samskipti, viðnámsþrótt, samfélagsgæði og samfélag fyrir alla.
  • Nýsköpun og framlag  í opinbera stefnumótun í frjálslyndu lýðræðissamfélagi.
  • Popúlismi, pólitísk forysta og hlutverk þeirra í umbreytingu samfélagsins.

Umræður verða um hvert þema og þær tengdar niðustöðum úr  lýðræðisvinnustofu á vegum PaCE verkefnis, sem haldin var í byrjun ársins.

Fyrirlestrum og umræðu í sal verður streymt. Notendum er boðið að senda inn spurningar á netinu.Upptaka verður aðgengileg að málþingi loknu.  

Viðurburðurinn á Facebook.

Dagskrá málþingsins má finna PDF icon hér.

Þátttaka er öllum opin en skráning nauðsynleg. Hægt er að skrá sig hér að neðan.

Málþingið er hluti af evrópuverkefninu Populism and Civic Engagement (PaCE) sem skoðar sögulegar og samfélagslegar forsendur popúlistaflokka og greinir jafnframt á milli ólíkra tegunda popúlistaflokka. Hér má finna samantekt um lýðræðisvinnustofu PaCE á Íslandi, sem fór fram í janúar 2021. Einnig eru upplýsingar um verkefnið á Facebook-síðunni Populism and Civic Engagement.

Niðurstöðu lýðræðisvinnustofunnar á Íslandi má finna PDF icon hér.

Niðurstöðum fylgt eftir
Daginn eftir málþingið í Gerðubergi verður haldin vinnustofa með fulltrúum stjórnvalda og öðrum þeim sem hafa áhrif mótun samfélagsins. Leitað verður í smiðju þeirra sem hafa reynslu til að raungera hugmyndir og tillögur. Unnið verður með niðurstöður frá lýðræðisvinnustofu PaCE sem haldin var í byrjun þessa árs, sem og tekinn púlsinn á umræðum sem sköpuðust á málþinginu. 

Frekari upplýsingar um verkefnið veitir:
Roxana Elena Cziker, verkefnastýra PaCE á Íslandi: roxana.elena.cziker@reykjavík.is 

Bókasafnið er opið fyrir nýjum hugmyndum um hvernig hægt er að þróa bókasafnið sem lýðræðisvettvang og samfélagsrými. Ef þú ert með hugmynd að samstarfi, hafðu þá endilega samband:
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is