New in Iceland

Um þennan viðburð

Tími
15:00
Verð
Frítt
Spjall og umræður

New in Iceland | Torgið

Þriðjudagur 24. ágúst 2021

Á hvaða upplýsingum þurfum við að halda til að fóta okkur og vera virkir þátttakendur í samfélaginu? Hvernig er best a miðla þessum upplýsingum svo við skiljum þær? 

Joanna Marcinkowska ræðir við okkur um ráðgjafaþjónustu New in Iceland, sem svarar spurningum innflytjenda um allt sem tengist lífinu á Íslandi.
Hvaða upplýsingar eru öllum nauðsynlegar? Skipta almenningsrými eins og bókasöfn máli þegar kemur að miðlun þekkingar óháð stöðu fólks?
Við ræðum hvernig við náum skilningi á nýjum aðstæðum og hvaða möguleika við höfum til að skilgreina hlutverk okkar í samfélaginu.

Umræðurnar eru opnar, öll velkomin og þátttaka ókeypis.  

New in Iceland má kynna sér frekar hér.

Viðburður á Facebook.

Frekari upplýsingar um viðburðinn veitir:

Dögg Sigmarsdóttir 
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is