"Frelsi" Sund eftir Eddu Þóreyju Kristfinnsdóttur
"Frelsi" Sund Eddu Þóreyju Kristfinnsdóttur

Um þennan viðburð

Tími
10:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Sýningar

Artótek | Naglinn: "Frelsi" Sund

Fimmtudagur 1. júlí 2021 - Þriðjudagur 31. ágúst 2021

Listaverkið „Frelsi“ Sund eftir Eddu Þóreyju Kristfinnsdóttur verður til sýnis á Naglanum í Borgarbókasafninu Sólheimum í júlí og ágúst. Verkið er fengið að láni úr Artótekinu, sem er til húsa í Borgarbókasafninu Grófinni.

Naglinn er heitið á sýningaröð á Borgarbókasafninu Sólheimum og er þetta 5. sýningin í röðinni. Hver sýning samanstendur af einu listaverki. Áhugasamir geta keypt verkið eða leigt það á kaupleigu en þá eignast viðkomandi verkið þegar það hefur verið greitt upp. Sé sýningarverkið keypt (eða leigt) má kaupandinn velja, úr Artótekinu, hvaða verk verður næst til sýnis á Naglanum.

Edda Þórey Kristfinnsdóttir er fædd árið 1956 og uppalin í Laugarneshverfinu. Hún útskrifaðist af fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri árið 2004 og hefur m.a. lokið burtfararprófi í hönnun. Í listsköpuninni er frelsið henni hugleikið og hvernig við erum á eilífu ferðalagi: Hús úr húsi, sveit úr sveit, borg úr borg, land úr landi, úr einni vist í aðra. 

Dóra Bergrún Ólafsdóttir, bókavörður á Sólheimasafni, valdi verkið að þessu sinni.

Verkið er hægt að leigja á 3.000 kr. á mánuði eða kaupa á 79.000 kr.

Nánari upplýsingar um Artótekið, listamanninn og verkið á https://artotek.is

 

Frekari upplýsingar:
magnus.orn.thorlacius@reykjavik.is | s. 411 6160
holmfridur.gunnlaugsdottir@reykjavik.is | s. 411 6112

Sjá viðburð á Facebook | info in English on Facebook
Opnunartími á Borgarbókasafninu Sólheimum